* Frí sending ef pantað er fyrir 12.000kr eða meira *

Skilmálar og skilyrði

Upplýsingar um fyrirtækið

Emra ehf. Hraunsnef 311 Borgarnes, 435-0111 / 8496793 emra@hraunsnef.is
Emra áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Í flestum tilvikum eru flíkurnar saumaðar eftir pöntunum og getur það tekið 1-5 virka daga að klára pöntun og koma henni í póst. Ef efnið hefur klárast og ekki er hægt að klára pöntunina verður haft samband við viðskiptavin og skoðað aðrar leiðir. Þá athugum við hvort hægt sé að panta efnið aftur, hvort viðskiptavinur vilji annað efni í staðin eða endurgreiðslu. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Emra ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Emru til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Þegar pakkinn er kominn til Póstsins fær kaupandi tölvupóst með sendingarnúmeri pakkans og getur fylgst með ferðum hans inná posturinn.is. Frí heimsending er á pöntunum 9500 kr og yfir.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við bjóðum uppá þrjá valmöguleika með sendingu. 1) Sending á næsta pósthús/póstbox sem kostar 1200kr. 2) Sending heim sem kostar 1600kr. 3) Frí heimsending á pöntunum sem fara yfir 12000kr. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi vesturlands 
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.